Fernandes jafnaði stoðsendingametið í sigri United

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Bruno Fernandes vantar bara eina stoðsendinga í viðbót til að eignast metið eftirsótta.
Bruno Fernandes vantar bara eina stoðsendinga í viðbót til að eignast metið eftirsótta. Martin Rickett/PA Images via Getty Images

Manchester United vann 3-2 gegn Nottingham Forest í 37. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Bruno Fernandes tókst að jafna stoðsendingamet deildarinnar og Matheus Cunha skoraði mjög umdeilt mark.

Leikurinn skipti litlu máli í stóra samhenginu. United er búið að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni og Forest er búið að bjarga sér frá falli. Af því tilefni var boðið upp á stórskemmtilegan leik.

United tók forystuna eftir aðeins fimm mínútur þegar Luke Shaw klippi boltann í netið. Sjaldséð eru mörkin hjá Shaw en þetta var hans fyrsta mark fyrir United síðan 2023.

Luke Shaw hafði ekki skorað fyrir Manchester United síðan árið 2023. Robbie Jay Barratt - AMA/Getty Images

Fjögur mörk voru síðan skoruð í seinni hálfleiknum og með skömmu millibili.

Morato jafnaði metin fyrir Forest á 53. mínútu en Matheus Cunha tók forystuna á ný fyrir United á 55. mínútu. Mark Cunha var mjög umdeilt því boltinn fór í hönd Bryan Mbeumo í aðdragandanum en ekkert var dæmt.

Bryan Mbeumo skoraði svo þriðja mark United á 76. mínútu áður en Morgan Gibbs-White minnkaði muninn fyrir Forest. Fleiri mörk voru hins vegar ekki skoruð og United fór með 3-2 sigur.

Bruno Fernandes lagði þriðja markið upp fyrir Mbeumo og er þar með búinn að jafna stoðsendingamet ensku úrvalsdeildarinnar. Fernandes er kominn með 20 stoðsendingar á tímabilinu og getur slegið met Thierry Henry og Kevin De Bruyne í næstu umferð.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira