PSG verð­skuldaður sigur­vegari Meistara­deildar Evrópu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Titill á loft. Loksins.
Titill á loft. Loksins. Michael Regan/Getty Images

París Saint-Germain stóð uppi sem sigurvegari Meistaradeildar Evrópu karla í fótbolta eftir ótrúlegan 5-0 sigur á Inter á Allianz-vellinum í Þýskalandi. Um er að ræða stærsta sigur í sögu Meistaradeildar Evrópu sem og forvera hennar.

Hreint út sagt ruglaðar lokatölur en það verður ekki annað sagt en sigurinn hafi verið sanngjarn, Parísarliðið var hreint út sagt magnað í kvöld og Inter átti engin svör.

Fyrir leik var erfitt að lesa í hvað myndi gerast í kvöld. Eftir að hiksta í deildarkeppninni hafði Parísarliðið sýnt frábær tilþrif í útsláttarkeppninni en sama skapi lenti liðið í vandræðum gegn Aston Villa á útivelli og minnti um tíma á gamla góða PSG-liðið sem gat aldrei unnið í Meistaradeildinni þegar allt var undir. Inter var á sama tíma bæði varnarsinnað en einnig frábært fram á við. Það var því búist við skemmtilegum leik en annað kom á daginn. 

Þessi mynd lýsir leiknum vel. Það var sem leikmenn PSG væru hreinlega fleiri á vellinum.Dan Mullan/Getty Images

Parísarliðið byrjaði leik kvöldsins mun betur og komst í raun sanngjarnt yfir strax á 12. mínútu eftir frábæra sókn. Vörn Inter var leikin grátt og Désiré Doué var með boltann í frábæru skotfæri innan vítateigs. Hann renndi boltanum hins vegar á bakvörðinn Achraf Hakimi sem var í enn betra færi og gat ekki annað en rennt boltanum í autt markið.

Stuðningsfólk PSG og allir leikmenn liðsins að Hakimi undanskildum fögnuðu gífurlega. Hakimi sjálfur vildi hins vegar greinilega sýna sínu fyrrum félagi virðingu og lyfti einfaldlega upp annarri hendinni eftir að koma PSG 1-0 yfir.

Spilaði með Inter 2020-21 og vildi ekki fagna.Christian Charisius/Getty Images

Aðeins átta mínútum síðar hafði PSG tvöfaldað forystuna. Það gerði Doué eftir magnaða skyndisókn Parísarliðsins sem vann boltann í eigin vítateig og óð svo upp völlinn. Boltinn barst frá vinstri yfir til hægri á Doué þökk sé Ousmane Dembélé.

Hinn 19 ára gamli Doué tók við boltanum og átti skot sem fór af Federico Dimarco og fram hjá varnarlausum Yann Sommer í marki Inter. Fyrri hálfleikur rétt hálfnaður og PSG í frábærum málum. Ef eitthvað er þá var PSG nær því að bæta við heldur en Inter að minnka muninn það sem eftir lifði fyrri hálfleiks. Staðan að honum loknum 2-0. 

Þegar rúm klukkustund var liðin gerði Parísarliðið endanlega út um leikinn og aftur var það hinn 19 ára gamli Doué sem naut sín á stóra sviðinu. 

Hinn stórskemmtilegi Vitinha renndi boltanum í gegnum vörn Inter og Doué - sem ógnaði sífellt með hraða sínum og krafti - þaut í gegnum þunglamalega vörn Inter og negldi boltanum fram hjá Sommer í markinu sem kom enn á ný engum vörnum við. 

Doué var tekinn af velli skömmu eftir annað mark sitt og þriðja mark PSG. Hann skoraði 5 mörk og gaf 4 stoðsendingar í Meistaradeildinni í vetur.Dan Mullan/Getty Images

PSG ákvað að halda í sömu uppskrift. Það voru 73 mínútur á klukkunni þegar Dembélé stakk boltanum í gegnum götótta vörn Inter-manna. Boltinn var ætlaður Khvicha Kvaratskhelia sem hafði verið nálægt því að skora fyrr í leiknum og að þessu sinni lét hann tækifærið ekki renna sér úr greipum. 

Kvaratskhelia negldi boltanum á nærstöngina þar sem Sommer fór of snemma niður og staðan orðin 4-0 PSG í vil. Var það jöfnun á stærsta sigri í sögu Meistaradeildarinnar frá upphafi.

Kvaratskhelia kann heldur betur við sig í PSG.EPA-EFE/FRIEDEMANN VOGEL

Niðurlæging Inter var svo fullkomnuð þegar varamennirnir Senny Mayulu og Bradley Barcola nudduðu salti í sárin með fimmta marki PSG á 86. mínútu. Staðan orðin 5-0 og reyndust það lokatölur leiksins. 

Stærsti sigur sögunnar í úrslitum Meistaradeildar Evópu. ANP/Getty Images

Ótrúlegur leikur, ótrúlegar lokatölur og ótrúlegt PSG-lið sem er án efa besta lið Evrópu í dag.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira