Næsta lægð nálgast landið og færir með sér gula viðvörun Eiður Þór Árnason skrifar 11. ágúst 2024 23:38 Hvassast verður í Öræfum á morgun. vísir/vilhelm Gul viðvörun vegna veðurs hefur verið gefin út fyrir Suðausturland á morgun vegna hvassviðris þegar lægð nálgast landið síðdegis. Viðvörunin gildir frá klukkan 14 til 21 á mánudag og spáir Veðurstofan norðaustan 13 til 20 metrum á sekúndu í landshlutanum.
Hvassast verður í Öræfum þar sem búast má við vindhviðum í kringum 30 metra á sekúndu. Vegagerðin varar sömuleiðis við hvassviðri á Suðausturlandi eftir hádegi á mánudag sem geti verið varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Vegfarendur eru beðnir um að athuga aðstæður vel áður en lagt er af stað. Lægð sunnan úr hafi Að sögn veðurfræðings nálgast næsta lægð landið sunnan úr hafi eftir rólegheita veður um helgina. Ganga skil frá henni vestur yfir landið á mánudeginum. „Þá gengur í norðaustan kalda eða strekking með rigningu víðast hvar, talsverð úrkoma á Austfjörðum síðdegis, en hvassviðri á Suðausturlandi. Þar er því ekki ráðlegt að vera á ferðinni á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind, en annað kvöld dregur úr vindi á þessum slóðum,” segir í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Vestantil á landinu verði þurrt fram eftir degi, en undir kvöld fari einnig að rigna þar. Hiti verði á bilinu 8 til 15 stig.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira