Fótbolti

Man Utd og Juventus bítast um Zakaria

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Á leið í stórlið fyrir gluggalok?
Á leið í stórlið fyrir gluggalok? vísir/Getty

Svissneski miðjumaðurinn Denis Zakaria er eftirsóttur á lokaspretti félagaskiptagluggans.

Samningur Zakaria við þýska úrvalsdeildarliðið Borussia Mönchengladbach rennur út næsta sumar og eru Þjóðverjarnir tilbúnir að leyfa þessum 25 ára gamla leikmanni að fara nú í janúar og fá þá í staðinn greiðslu fyrir kappann.

Ralf Rangnick, stjóri Man Utd, vill klófesta Zakaria en er ekki einn um hituna þar sem ítalska stórveldið Juventus hefur líka sent inn tilboð.

Talið er að Mönchengladbach sætti sig við 10 milljónir punda fyrir Zakaria sem hefur leikið 40 landsleiki fyrir Sviss.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×