Loks sigur hjá Börsungum

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Stoðsending og mark hjá Gavi í kvöld.
Stoðsending og mark hjá Gavi í kvöld. vísir/Getty

Barcelona komst aftur á sigurbraut í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar liðið fékk Elche í heimsókn á Nou Camp.

Spænska stórveldið hafði ekki unnið í fjórum leikjum í röð þegar kom að leik kvöldsins en leikurinn fór ansi vel af stað fyrir heimamenn.

Mörk frá Ferran Jutgla og Gavi snemma leiks sáu til þess að Barcelona fór með tveggja marka forystu í leikhléið. 

Eftir rúmlega klukkutíma leik slokknaði algjörlega á heimamönnum þegar Elche skoraði tvö mörk á rúmri mínútu og staðan skyndilega orðin 2-2.

Hinn nítján ára gamli Nico Gonzalez reyndist hetja Börsunga þegar hann gerði sigurmarkið á 85.mínútu eftir stoðsendingu frá Gavi.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira