Erlent

Svínsnýra grætt á fótlegg sjúklings starfar eðlilega og framleiðir þvag

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Nýrað var grætt á fótlegg heiladauðs sjúklings.
Nýrað var grætt á fótlegg heiladauðs sjúklings. AP/NYU Langone Health/Joe Carrotta

Skurðlæknum í New York hefur tekist að græða nýra úr erfðabreyttu svíni á mann. Fylgst var með sjúklingnum í 54 klukkustundir og virtist nýrað starfa eðlilega og framleiddi meðal annars þvag og úrgangsefnið kreatínín.

Niðurstöðum tilraunarinnar hefur verið fagnað vestanhafs og þykja gefa góða von um að hægt verði að koma til móts við verulegan skort á líffærum með því að nota líffæri úr svínum. Í Bandaríkjunum bíða um 100 þúsund manns eftir líffæri, þar af 90 þúsund eftir nýra.

Árlega deyja 12 einstaklingar á biðlistum.

Aðgerðin var heldur óvenjuleg en hún fól í sér að svínsnýran var grætt á fótlegg heiladauðs einstaklings. Sá var líffæragjafi en þegar ljóst var að ekki var hægt að nota líffærin gáfu aðstandendur leyfi fyrir umræddri tilraun.

Erfðamengi svínsins var breytt til að draga úr líkunum á því að mannslíkaminn hafnaði nýranu og á meðan vísindamenn fylgdust með virkni líffærisins var ekki annað að sjá en að allt hefði farið að óskum.

Aðstandendur rannsóknarinnar benda til að mynda á að flest vandamál sem komi upp þegar líkaminn hafnar dýralíffærum hafi með það að gera þegar mannsblóð rennur um líffærin og að sú staðreynd að líffærið hafi starfað eðlilega utan líkamans bendi til þess að það muni einnig gera það þegar eiginleg ígræðsla verður framkvæmd.

Nýrað virtist starfa eðlilega þann tíma sem fylgst var með því.AP/NYU Langone Health/Joe Carrotta

Aðrir hafa hins vegar bent á að enn sé margt á huldu, meðal annars hvort líffærið heldur áfram að starfa til lengri tíma litið og þá sinni það öðrum störfum en að hreinsa úrgangsefni úr blóðinu. Þá séu uppi áhyggjur af því að líffæraþeginn smitist af vírusum sem herja á svín.

Vísindamenn hafa löngum gert tilraunir með líffæraígræðslur á milli tegunda. Þannig hafa nýru úr simpönsum verið grædd í menn, með miður góðum árangri þó, og árið 1983 var hjarta úr bavíana grætt í stúlkubarn. Stúlkan lést 20 dögum síðar.

Ósæðralokur úr svínum eru hins vegar græddar í menn á hverjum degi og þá hafa sykursýkissjúklingar fengið brisfrumur úr svínum. Svínshúð hefur einnig verið notuð hjá brunasjúklingum.

New York Times greindi frá.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×