Innlent

Hildi­gunnur skipuð for­stjóri Sjúkra­hússins á Akur­eyri

Kjartan Kjartansson skrifar
Hildigunnar Svavarsdóttir, nýr forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri.
Hildigunnar Svavarsdóttir, nýr forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri. Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisráðherra hefur skipað Hildigunni Svavarsdóttur forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri til næstu fimm ára. Hildigunnur hefur verið framkvæmdastjóri hjúkrunar á sjúkrahúsinu og klínískur framkvæmdastjóri á bráða- og þróunarsviði frá 2012.

Sjö sóttu um embætti forstjóra eftir að það var auglýst í júní. Ráðherra ákvað að skipa Hildigunni í framhaldi af álitsgerð hæfnisnefndar, að því er segir í tilkynningu á vef heilbrigðisráðuneytisins.

Hildigunnur hefur BS próf í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri og MS próf í heilbrigðisvísindum frá Glasgow Caledonian háskóla. Þá hefur hún lagt stund á nám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands.

Um Hildigunni segir í tilkynningu ráðuneytisins:

Hildigunnur hefur yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á sviði heilbrigðisþjónustu ásamt víðtækri reynslu á sviði stjórnunar. Hún hefur verið framkvæmdastjóri hjúkrunar á SAk frá árinu 2012 ásamt því að vera klínískur framkvæmdastjóri á bráða- og þróunarsviði frá sama ári. Í störfum sínum sem framkvæmdastjóri hefur Hildigunnar öðlast víðtæka reynslu af rekstri og stjórnun svo og mannauðsstjórnun. Hún var forstöðumaður deildar kennslu, vísinda og gæða á SAk um tíu ára skeið, sem framkvæmdastjóri og forstöðumaður tók Hildigunnur mjög virkan þátt í uppbyggingu gæðastarfs sem síðan leiddi til alþjóðlegrar gæðavottunar á SAk. Þá hefur hún verið virk í stefnumótun bæði innan hjúkrunar og fyrir SAk í heild sinni. Hún var skólastjóri Sjúkraflutningaskólans um í tíu ár og átti ríkan þátt í því að nám sjúkraflutningamanna fluttist á landsbyggðina. Hildigunnur var formaður Landssambands heilbrigðisstofnana í þrjú ár.

Þá hefur Hildigunnar umtalsverða reynslu af kennslu og vísindum. Starfaði sem lektor við Háskólann á Akureyri (HA) í fimmtán ár og er nú með stöðu klínísks lektors við heilbrigðisvísindastofnun HA. Hildigunnur hefur verið virk í vísindastarfi og er meðhöfundur á greinum í erlendum tímaritum. Einnig hefur hún mikla reynslu af alþjóðastarfi, má þar nefna verkefnastjórn á vegum Norðurslóðaáætlunar Evrópusambandsins. Hún hefur setið í stjórn Endurlífgunarráðs Evrópu í 15 ár og í framkvæmdastjórn ráðsins í fimm ár. Þá var hún í forsvari fyrir hóp leiðbeinenda sem fór á vegum Rauða kross Íslands þrisvar sinnum til Palestínu til að byggja upp þekkingu og þjálfun í endurlífgun í samstarfi við palestínska Rauða Hálfmánann.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×