Innlent

Þing­kona í ræktinni hjá systur sinni

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, var gagnrýnd fyrir ferð í ræktina.
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, var gagnrýnd fyrir ferð í ræktina. Vísir/Vilhelm

Ásta Guðrún Helgadóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata, er gagnrýnin á Silju Dögg Gunnarsdóttur, þingmann Framsóknarflokksins. Sú síðarnefnda fór í líkamsræktarstöð systur sinnar í dag en líkamsræktarstöðvar hafa verið lokaðar síðan fyrir páska.

Ásta birti færslu á Twitter í kvöld. Þar má sjá skjáskot af Facebook-færslu sem Silja Dögg birti, með mynd af sér í ræktinni. Af texta færslunnar má ráða að Silja sé mætt í líkamsrækt með systur sinni, sem er eigandi Orkustöðvarinnar í Reykjanesbæ.

„Þingmaður ríkisstjórnarflokks notar tengsl sín til þess að gera það sem almenningi er bannað. Montar sig á FB í þokkabót. Kunnuglegt stef og afleiðingarnar verða engar frekar en fyrri daginn,“ skrifar Ásta Guðrún og spyr hvort ríkisstjórnin sé „alveg klofin í þrennt.“

Silja Dögg fær fín viðbrögð á Facebook-færsluna og hefur fengið hrós fyrir framtakið í athugasemdum við hana. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, er meðal þeirra sem setja „like“ við færsluna.

Segist einfaldlega heppin með systur

Í samtali við Vísi segist Silja Dögg ekki hafa komist í líkamsrækt vegna tengsla sinna sem þingmaður. Hún sé einfaldlega svo heppin að systir hennar eigi líkamsræktarstöð, sem hún hafi boðið henni að koma með í.

„Það er ekkert merkilegra en það,“ segir Silja Dögg og segir gagnrýnina hafa verið viðbúna.

„Þetta er ekki opin stöð. Hún er lokuð og það er enginn að fara þarna nema ég og systir mín. Hún er ekki að opna þarna fyrir vini og vandamenn.“

Silja Dögg segist þó skilja gagnrýnina. Hún átti sig á því að marga langi eflaust í ræktina og búi ekki svo vel að eiga systur sem eigi líkamsræktarstöð.

„Ég er bara mjög heppin að hún bauð mér með sér, en stöðin er lokuð og verður það þangað til annað er leyft,“ segir Silja Dögg. Hún kveðst ekki hafa beðið systur sína um að taka sig með í ræktina.

Hún ítrekar þá að aðgangur hennar að stöðinni hafi ekki haft neitt að gera með stöðu hennar sem þingmaður. Hún hefði farið með henni hvort sem hún væri á þingi.

„Ég er ekki með einhver sambönd sem þingmaður. Ég mæti ekki upp í Sporthús og segi: „Já þingmaðurinn er mættur, viljið þið opna fyrir mér.““



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×