Varð fyrir bíl á göngu frá Seattle á HM 2014 í Brasilíu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. maí 2013 21:02 Richard heitinn Swanson. Mynd/Facebook
42 ára gamall Bandaríkjamaður lét lífið þegar hann varð fyrir pallbíl um 400 kílómetra suður af Seattle á vesturströnd Bandaríkjanna. Maðurinn ætlaði sér að ganga frá Seattle til Brasilíu eða um 16 þúsund kílómetra leið. Maðurinn hét Richard Swanson og var atvinnulaus tveggja barna faðir. Hann starfaði á sínum tíma sem rannsóknarlögreglumaður og síðar sem grafískur hönnuður. Þegar hann missti vinnuna fór hann að velta möguleikum sínum fyrir sér. Swanson hafði alltaf langað á HM í fótbolta og ákvað að slá til. Heimsmeistarakeppnin fer fram í Brasilíu sumarið 2014 og Swanson ákvað að fara óvenjulegri leið en flestir á stórmótið. Leiðin skyldi farin á tveimur jafnfljótum. „Fyrst ég er að fara á HM ætti ég að rekja bolta alla leiðina keppninni til heiðurs,“ sagði Swanson í myndbandi sem hann tók upp áður en hann lagði af stað í gönguna löngu. Swanson segist í myndbandinu hafa velt fyrir sér hvaða kjáni myndi gera slíkt, þ.e. hafa bolta með sér, og ætlað að hætta við það. Vinkona hans hafi þá bent honum á fyrirtæki sem framleiðir bolta sem eru sérhannaðir fyrir notkun í þróunarlöndum. Ending þeirra er mun meiri og ákvað Swanson að nota tækifærið og efndi til samstarfs við fyrirtækið. Hann seldi húsið sitt og mat það sem svo að sonum hans sem eru 18 og 22 ára yrði ekki meint af þótt hann legði upp í langferðina. Þá vissi enginn að ferðin yrði yfir móðuna miklu. Fjölmargir hafa vottað fjölskyldu Swanson samúð sína bæði á Facebook-síðu göngunnar og við YouTube-myndbandið hér að ofan. Vilja margir að fótboltinn, sem fannst á vettvangi, verði fluttur til Brasilíu. Leggur einn til að fyrsta spyrna keppninnar verði með boltanum sem Swanson hafði gengið með 400 kílómetra af þeim 16 þúsund sem hann ætlaði sér. Einn þeirra sem skrifar athugasemd á Facebook-síðunni er Devin, eldri sonur Swanson. „Þú ert öllum innblástur með því að gera það sem þú elskar. Einn daginn mun ég ljúka ferðalaginu í þínu nafni.“ Swanson lagði af stað í göngu sína þann 1. maí en slysið átti sér stað í gær, þriðjudaginn 14. maí. Lögregluyfirvöld í Oregon rannsaka nú tildrög slyssins í samvinnu við ökumann pallbílsins.
Fótbolti Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Fleiri fréttir Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Þrjú félög örugg með að eignast nýjan heimsmeistara Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Fylkismenn kláruðu Njarðvíkinga fyrir hlé „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Tveir öflugir Spánverjar æfðu ekki með restinni af liðinu Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Harður gagnrýnandi Trumps við hlið hans á úrslitaleik HM Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Bríet Fjóla keypt til Þróttar Blatter baunar aftur á FIFA: „Lengsta hlé í sögu fótboltans“ Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Svarar Romero fullum hálsi: „Veit um hvað ég er að tala“ Yngri bróðir með frábæra ferilskrá tekur slaginn með KA Bowen heldur tryggð eftir fallið Loftgæðin hættuleg leikmönnum Heimsmeistarar fá hring Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Flugóður forseti FIFA Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? „Fjögur ár eru langur tími“ „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Ari Leifsson í Stjörnuna Sjá meira