Árangursrík meðferð við MS-sjúkdómnum Magnús Þorlákur Lúðvíksson skrifar 10. júní 2013 06:00
Vísindamenn við Northwestern-háskólann í Chicago hafa lokið fyrri hluta tilrauna á nýrri meðferð við MS-sjúkdómnum sem getur dregið úr einkennum sjúkdómsins um allt að 75%. MS-sjúkdómurinn hefur áhrif á miðtaugakerfi líkamans. Hann veldur því að ónæmiskerfið ræðst að einangrandi efni sem heitir mýelín og umlykur taugafrumur í mænu, heila og sjóntaug. Það veldur því að taugafrumurnar geta ekki miðlað rafboðum með fullnægjandi hætti og það veldur sjúkdómseinkennum. Í alvarlegustu tilfellunum getur sjúkdómurinn valdið lömun. Stephen Miller, prófessor við Northwestern-háskóla, segir að nýja meðferðin stöðvi ónæmisviðbrögðin og komi í veg fyrir að nýjar ónæmisfrumur ráðist á mýelínið. „Þá er okkar nálgun þess eðlis að ónæmiskerfið starfar eðlilega. Það er stóra málið sem aðrar meðferðir hefur skort,“ segir hann. Nýja meðferðin snýst um að nota hvít blóðkorn MS-sjúklinga til að lauma milljörðum mýelín-mótefnisvaka inn í líkama þeirra. Þar sem vakarnir koma inn í líkamann með blóðkornunum ræðst ónæmiskerfið ekki að þeim og myndar að lokum þol gagnvart þeim. Meðferðin hefur því ekki sama ókost og aðrar meðferðir sem bæla niður virkni ónæmiskerfisins og gera MS-sjúklinga þar með berskjaldaða fyrir öðrum sjúkdómum. Um 430 Íslendingar hafa greinst með MS og er MS-félag Íslands starfrækt til að vinna að velferð þessa fólks.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt Sjá meira