Tólf látist af völdum svínaflensu á Indlandi 25. mars 2012 12:45 Bólusetning. mynd úr safni
Að minnsta kosti tólf hafa látist af völdum svínaflensu á Indlandi það sem af er þessum mánuði og yfir hundrað eru sýktir. Þetta er í annað sinn sem svínaflensufaraldur geysar í landinu en árið 2009 létust hátt í fimmhundruð manns og að minnsta kosti þrettán þúsund urðu mjög veikir af völdum flensunnar. Ekki er vitað hvar flensan hafi átt upptök sín í þetta sinn en indversk heilbrigðisyfirvöld reyna nú að átta sig á því af hverju hún hefur gert vart við sig á ný. Mikill viðbúnaður er í þeim ríkjum sem flensan hefur komið upp en heilbrigðisyfirvöld hafa beðið landsmenn um að halda ró sinni og segjast geta haldið faraldrinum í skefjum. Svínaflensan greindist fyrst í Mexíkó og Bandaríkjunum í apríl 2009 en breiddist fljótt út um allan heim. Rúmlega 17.000 manns létust af hennar völdum og fjölmargir veiktust, þar af nokkrir hér á Íslandi, en það var í ágúst árið 2010 sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lýst því yfir að svínaflensufaraldrinum væri lokið. Þrátt fyrir það hafa tilfelli greinst víðs vegar um heiminn frá þeim tíma.
Mest lesið Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Innlent Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Innlent Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Fleiri fréttir Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sjá meira