Erlent

Ökumaður rútunnar handtekinn

Rútuslysið er eitt það versta í sögu Bretlands í áratug.
Rútuslysið er eitt það versta í sögu Bretlands í áratug. mynd/AFp
Sextíu og fimm ára gamall ökumaður flutningabíls sem ók aftan á rútu á hraðbraut í miðhéruðum Englands í gærmorgun er látinn. Þar með eru fórnarlömb slyssins orðin tvö en þrjátíu og fimm ára gamall farþegi rútunnar var úrskurðaður látinn á slysstað. Fjölmargir slösuðust og þar af liggur einn þungt haldinn á sjúkrahúsi.

Ökumaður rútunnar var handtekinn í gær grunaður um að hafa valdið slysinu með glæfralegrum akstri en honum hefur verið sleppt gegn tryggingu.

Mikil þoka var á svæðinu þegar umferðarslysið varð en það er sagt eitt það versta í sögu Bretlands í um áratug.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×