Vopnaðir verðir í dönskum skipum Óli Tynes skrifar 19. apríl 2009 12:01 Alþjóðlegur herskipafloti má ekki beita sér gegn móðurskipum sjóræningjanna.
Í gærmorgun var reynt að ræna einu af skipum danska skipafélagsins Schipcraft. Tilraunin mistókst en framkvæmdastjóri Schipcraft Per Nykjær Jensen er búinn að fá nóg. Hann segir að hér eftir verði vopnaðir verðir um borð í þeim skipum félagsins sem sigli á sjóræningjaslóðum. Nykjær Jensen segir að það verði í lengstu lög reynt að komast hjá vopnuðum átökum. Þannig muni verðirnir hafa öfluga hátalara sem verða notaðir til þess að segja sjóræningjunum að það séu vopn um borð og þau verði notuð. Einnig verði sent út neyðarkall til alþjóðlega herskipaflotans sem er á svæðinu og hann beðinn um að senda þyrlur eða skip. Nykjær Jensen segir að þetta verði vissulega dýrt. Hinsvegar beri félaginu skylda til þess að reyna að vernda áhafnir sínar. Það yrði einnig dýrt ef einhverju skipanna yrði rænt og þeir þyrftu að borga milljónir dollara í lausnargjald. Nykjær Jensen þykir illt að vegna alþjóðalaga megi alþjóðaflotinn ekki beita sér meira gegn móðurskipum sjóræningjanna. Þau flytji litla árásarbáta langt á haf út og stækki þannig margfallt það svæði sem þarf að hafa eftirlit með. Lagaflækjur gera einnig að verkum að í sumum tilfellum mega herskipin ekki handtaka sjóræningja jafnvel þótt þeir séu staðnir að verki. Þannig urðu til dæmis hollenskir sjóliðar að láta lausa sjö sjóræningja sem þeir handtóku eftir að þeir höfðu skotið bæði eldflaugum og af hríðskotarifflum á flutningaskip.
Mest lesið Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Innlent Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Sagði veikri dóttur sinni að hann vonaði að hún myndi deyja Innlent „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Erlent Afleiðingarnar velti á Flokki fólksins Innlent Fundu fleiri vopn og handtóku suma á skemmtun á Selfossi Innlent Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Innlent Kannast við tannstönglatrixið: „Nágrannavarsla er albesta vörnin“ Innlent Ógnaði lífi vegfarenda og lögreglu með ofsaakstri í Hafnarfirði Innlent Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Erlent Fleiri fréttir Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Rappsveitin sem sætti hryðjuverkarannsókn sleppur með skrekkinn Skotinn til bana þegar hann söng Linkin Park á karókíkvöldi Bretar hyggjast lækka kosningaaldur í sextán ár Að minnsta kosti 25 börn seld frá Indónesíu til Singapúr Þjónkun við Trump?: CBS leggur niður Late Show „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Saksóknari í Epstein-málinu látinn taka pokann sinn Borgarstjóri Istanbúl í tuttugu mánaða fangelsi Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Ísrael sprengir í Sýrlandi: Þrír látnir og tugir særðir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Leynd aflétt af leynilegri áætlun um móttöku Afgana Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart Sjá meira