Erlent

Smástirni þýtur framhjá jörðinni á næstu dögum

Engin hætta stafar af YU55 en vísindamenn bíða spenntir eftir að rannsaka smástirnið.
Engin hætta stafar af YU55 en vísindamenn bíða spenntir eftir að rannsaka smástirnið.
Smástirnið YU55 mun þjóta framhjá jörðinni næstkomandi þriðjudag. Vísindamenn hjá Geimferðastofnun Bandaríkjanna telja að smástirnið verði í 325.000 kílómetra fjarlægð frá jörðinni, þannig verður smástirnið nær jörðinni en tunglið. YU55 er tæpir 400 metrar að breidd.

Talsmenn NASA segja að engin hætta stafi af YU55, ferðalag þess framhjá jörðinni bjóði upp á kjörið tækifæri til að rannsaka smástirni af þessu tagi.

Geimvísindamaðurinn Thomas Statler segir að nauðsynlegt sé að afla upplýsinga um smástirni og loftsteina svo að við getum undirbúið okkur þegar hætta steðjar að.

Eðlisfræðingurinn Jay Melosh hjá Purdue háskólanum í Indíana segir að ef smástirni að svipaðri stærð og YU55 myndi lenda í úthafi á jörðinni, þá myndi 7.0 stiga jarðskjálfti fylgja ásamt 20 metra hárri flóðbylgju. Talið er að slíkir árekstrar eigi sér stað á 100.000 ára fresti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×