Erlent

Enn einn neyðarfundurinn hjá leiðtogum ESB

Leiðtogar Evrópusambandsins halda enn einn neyðarfund sinn í dag vegna Grikklands.

Leiðtogarnir koma saman í Cannes en fundurinn var ákveðinn eftir að Angela Merkel kanslari Þýskalands og Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti ræddu málin í síma í gærdag.

Efni fundarins er þjóðaratkvæðagreiðslan í Grikklandi og mun Papandreou forsætisráðherra Grikklands sitja hann. Auk þess munu fulltrúar frá Evrópska seðlabankanum og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sitja fundinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×