Erlent

Líklegt að kjarnasamruni hafi orðið í Fukushima

Efnið xenon hefur fundist í rústum kjarnorkuversins í Fukushima í Japan. Það bendir til þess að kjarnasamruni hafi orðið í verinu þegar það eyðilagðist í miklum jarðskjálfta og flóðbylgju sem fylgdi í kjölfari í mars á þessu ári.

Í frétt um málið á CNN segir að Tokyo Electric Power, sem á kjarnorkuverið, hafi reynt að dæla boric sýru inn á kælikerfi kjarnorkuversins en hitastigið í kerfinu hafi ekki lækkað við það. Slíkt bendir einnig til að kjarnasamruni hafi átt sér stað.

Japönsk stjórnvöld telja að það taki 30 ár að hreinsa upp skaðann sem varð í Fukushima kjarnorkuverinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×