Erlent

Þriðjungur þorir ekki að versla á Netinu

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Þriðjungur breskra netnotenda þorir ekki að nota kreditkort til að versla á Netinu. Það var könnun bresku samkeppnisstofnunarinnar sem leiddi þennan sannleik í ljós en ný skýrsla stofnunarinnar fjallar meðal annars um kortanotkun á Netinu.

Þessi þriðjungur treystir einfaldlega ekki nægilega á öryggi í kortanotkun sem fram fer á vefnum og segir John Fingleton hjá samkeppnisstofnuninni að þetta sé áhyggjuefni þar sem framtíðin hjá mjög stórum hluta smásöluverslana sé einmitt verslun á Netinu. Eigi markaðurinn að ná fullum vexti verði fólk að komast yfir óttann við að gefa kortaupplýsingar á Netinu.

Þetta kemur þó ekki í veg fyrir það að Bretar eigi Evrópumet í verslun á Netinu en talið er að þeir versli þar tvöfalt meira en flestir nágrannar þeirra á meginlandinu. Traustið hefur þó aukist hröðum skrefum síðan árið 2006 en þá töldu aðeins 26 prósent þeirra sem versla á Netinu öryggið vera nægilegt. Þetta hlutfall er nú komið upp í 54 prósent og í fyrra versluðu Bretar fyrir tæpa 44 milljarða punda á Netinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×