Erlent

Á fimmta hundrað sektir á einni og sömu uppákomu

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Lögregla í Vandel á Suðaustur-Jótlandi hafði nóg að gera um helgina þegar 410 sektarmiðar voru skrifaðir á einni og sömu uppákomunni, hinni ólöglegu kappaksturshátíð „Hraðskreiðasti bíll landsins" eða „Danmarks hurtigste bil". Um var að ræða stóra aðgerð lögreglu og skattyfirvalda en um leið og ástand bíla og ökumanna var kannað athugaði skatturinn hvernig skuldastaða ýmissa opinberra gjalda væri hjá eigendum bílanna. Lauk því með því að skatturinn lagði hald á þó nokkra bíla, hvort tveggja vegna vangoldinna gjalda og ólöglegs eða óskráðs aukabúnaðar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×