Erlent

Spítali í Manchester tapaði 1,3 milljörðum á bankahruninu

Christie Cancer spítalinn í Manchester, gerði þá kröfu á ríkisstjórn Bretlands að hún ábyrgðist þær 6,5 milljónir punda sem spítalinn tapaði samfara íslenska bankahruninu. Spítalinn lagði þessa fjármuni inn á Kaupthing Edge innlánsreikning hjá Singer & Friedlander, dótturfélagi Kaupþings í London.

Góðgerðasamtök spítalans sem safna um 13 milljónum punda, jafnvirði rúmlega 2,6 milljörðum króna, á hverju ári til að greiða fyrir aukna þjónustu við sjúklinga, örkuðu að Downingstræti 10 með 100 þúsund undirskriftir og kröfðust þess að ríkisstjórnin myndi ábyrgjast upphæðina.

„Við ákváðum að hætta ekki mótmælum fyrr en við fengjum peningana okkar aftur," hafði breska ríkissjónvarpið eftir einum mótmælanda samtakanna. Þeim hefur nú tekist ætlunarverk sitt en ríkisstjórnin breska hefur staðfest að hún muni hlaupa undir bagga með samtökunum og greiða þeim tilbaka þá 1,3 milljarða króna sem samtökin höfðu lagt inn í Singer & Friedlander.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×