Erlent

Samfélagsþjónusta í uppnámi vegna veðurs

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Breskur fíkniefnasali fór beint inn í fangaklefa þegar hann þverneitaði að gegna samfélagsþjónustu af óvenjulegri ástæðu.

David Houlsby er 23 ára gamall fíkniefnasali frá Newcastle-upon-Tyne. Hann var gripinn við iðju sína og sigldi sína leið gegnum réttarkerfið. Þar sem brotið var ekki stórvægilegt að þessu sinni bauðst Houlsby að taka hluta refsingarinnar út sem þjónustu við samfélagið og var um útivinnu að ræða.

Þremur tímum eftir að starfið hófst gekk Houlsby á fund skilorðsfulltrúa síns og lagði kröfur sínar skýlaust á borðið: Hann vildi fá að fara heim af því að það rigndi. Þegar tillögunni var vísað kurteislega á bug brást Houlsby hinn versti við. Hann veitti flaumi fúkyrða yfir fulltrúann og hótaði honum öllu illu.

Ekki var þetta í fyrsta sinn sem fanginn lét skoðanir sínar uppi. Þegar hann var dæmdur á sínum tíma kvartaði hann yfir því við réttinn að dómurinn væri allt of strangur og auk þess mannréttindabrot. Þegar Houlsby kom á ný fyrir dómara eftir stutta samfélagsþjónustu var hann sendur beint inn í klefa með þeim rökstuðningi að hann gæfi dómaranum fárra kosta völ.

Houlsby hefur nú lofað bót og betrun en þarf þó að líkindum að ljúka sinni afplánun innan múranna frekar en við störf í þágu samfélagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×