Mikill olíuleki við suðurströnd Noregs 1. ágúst 2009 02:15 Flutningaskipið Full City sigldi í strand í hvassviðrinu og hefur verulegt magn af olíu lekið úr eldsneytistönkum þess. Mynd/AP
Verulegt magn af olíu hefur lekið úr kínverska flutningaskipinu Full City, sem strandaði við suðurströnd Noregs snemma í fyrrinótt. Síðar um nóttina sökk norskt flutningaskip við suðvesturströnd Svíþjóðar og er sex manna úr áhöfn þess saknað. Óttast er að olíulekinn úr kínverska skipinu valdi miklum skaða á lífríkinu við ströndina, en skipið strandaði við Langasund. Fuglalíf á þessum slóðum er í hættu og fljótlega fundust margir fuglar fastir í olíunni. Áhöfn skipsins vann að því ásamt björgunarfólki að hreinsa olíu úr sjónum, en ekki var ljóst í gær hve vel myndi takast til með það. Almenningur var beðinn um að forðast ströndina þar til ljóst verður hve skaðinn er mikill. „Tími strandbaða er liðinn í Krókshöfn og Steinvík þetta árið," hafði norska dagblaðið Aftenposten eftir Jon Pieter Flølo, talsmanni Þelamerkursýslu, á vefsíðum sínum í gær. Tuttugu og þriggja manna áhöfn skipsins slapp heilu og höldnu. Skipið er skráð í Panama en í eigu Kínverja og áhöfnin er að mestu skipuð Kínverjum. Meira en þúsund tonn af olíu voru í eldsneytistönkum skipsins en ekki er ljóst hve stór hluti hennar lak út í hafið. Á vefsíðum norska dagblaðsins Aftenposten er fullyrt að á tímabili hafi hreinlega rignt olíu við ströndina, því hvassviðrið hafi þeytt henni á loft langar leiðir. Norska skipið Langeland sökk í Kosterfirði við Svíþjóð, skammt frá landamærum Noregs. Bæði sjóslysin urðu því á svipuðum slóðum með fárra klukkustunda millibili, en mikið hvassviðri geisaði þarna í fyrrinótt. Áhöfnin er að mestu rússnesk og var í gær gerð mikil leit að sex manns úr áhöfninni sem taldir voru af. Sex björgunarvesti, fleki og brak úr skipinu fannst á floti í hafinu. Skipið er 2.500 tonn að þyngd og 70 metra langt. Það var á leiðinni frá Karlshöfn í Svíþjóð til Moss í Noregi og sendi frá sér neyðarmerki klukkan sex í gærmorgun. Á þessu svæði er dýptin til botns á bilinu 50 til 200 metrar, en það þótti of mikið dýpi til að hægt væri með góðu móti að kafa niður að skipinu til að kanna hvort mennirnir sex hafi hugsanlega verið á lífi í loftrými einhvers staðar í skipinu.
Mest lesið Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðarvogi Innlent Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Erlent Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent Nýir ofnar skemmast vegna súrefnis í heita vatninu Innlent Haraldur Briem er látinn Innlent Fleiri eldislaxar í Haukadalsá: „Þetta lítur alls ekki vel út“ Innlent Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Erlent Segir dæmi um að fjölskyldur hafi lokað á fólk vegna BDSM Innlent Helgi Vilberg Hermannsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Hitamet falla og gróðureldar geisa í Evrópu og víðar Rússar myndu nota Donbas til að ráðast enn lengra inn í Úkraínu Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Sendir frá Norður-Kóreu í „þrældóm“ í Rússlandi Greta Thunberg siglir á ný til Gasa Skoða að stofna viðbragðssveit gegn uppþotum í Bandaríkjunum Hernumin héruð horfi fram á þjóðernishreinsun Vara við afleiðingum samsæriskenninga eftir skotárás á heilbrigðisstofnun Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Smyglaði 850 skjaldbökum í sokkum frá Bandaríkjunum Albanese segir Netanyahu í afneitun Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Leiðtogar Evrópu ítreka sjálfsákvörðunarrétt Úkraínumanna Einn látinn og tíu slasaðir eftir stóra sprengingu „Þetta er í rauninni þreifingafundur“ Ákvörðun Trump valdabrölt: „Það á eftir að verða meira svona“ Sjá meira