Segja skilið við vopnahlé Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 4. júní 2012 20:52 Frá mótmælum í Damaskus, höfuðborg Sýrlands. mynd/AFP
Þjóðarráð Sýrlands, helstu samtök stjórnarandstæðinga í landinu, hefur sagt skilið við hið máttlausa vopnahlé sem ríkt hefur í landinu síðustu vikur. Talsmaður samtakanna, Sami al-Kurdi, sagði Reuters fréttaveitunni í dag að liðsmenn Þjóðarráðsins hefðu neyðst til að grípa til örþrifaráða þegar stjórnarhermenn gerðu árásir á óbreytta borgara. Þar með hafi samtökin ákveðið að slíta vopnahléinu. Að minnsta kosti 80 sýrlenskir hermenn létust í bardögum við uppreisnarmenn um helgina. Þá létust rúmlega 30 óbreyttir borgarar og andspyrnumenn í átökum við stjórnarhermenn í dag. Vopnahléið var liður í friðaráætlun Kofi Annans, erindreka Sameinuðu Þjóðanna og Arabandalagsins í Sýrlandi. Þrátt fyrir að ríkisstjórn Bashar al- Assads, forseta Sýrlands, og leiðtogar stjórnarandstæðinga hafi samþykkt friðaráætlunina þá hafa átök haldið áfram í landinu og harnað verulega á síðustu vikum. Utanríkisráðherra Frakklands, Laurent Fabius, sagði í dag að svívirðilegt athæfi yfirvalda í Sýrlandi síðustu mánuði gerðu það að verkum að ómögulegt sé að útkljá málin þar í landi á meðan al-Assad er við völd. Þá sagði Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu Þjóðanna, aftur á móti að friðaráætlun Kofi Annans væri virk og að hún væri enn sem komið er til grundvallar friðarferlinu í Sýrlandi. Hægt er að nálgast umfjöllun BBC um stöðu mála í Sýrlandi hér.
Mest lesið RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Erlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Innlent Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Sundlaugargestur handtekinn Innlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Erlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Fleiri fréttir Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Sjá meira