Tölvubilun setur flug í Evrópu úr skorðum ingvar haraldsson skrifar 13. desember 2014 09:00 Lokun loftrýmisins hafði áhrif á flugferðir þúsunda ferðalanga á Heathorw og fleiri flugvöllum í gær. fréttablaðið/ap
Meiriháttar truflun varð á flugsamgögnum á Bretlandseyjum og víðar í Evrópu eftir að loftrýminu yfir London í var lokað í 35 mínútur síðdegis í gær. Bilun í tölvukerfi flugstjórnarstöðvarinnar í Swanwick, sem stýrir flugumferð yfir London, olli því að loka þurfti lofthelginni. Búið var að fella niður 66 flug frá Heathrow flugvellinum í London þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöldi. Búist var við því að fleiri flug yrðu felld niður eftir því sem leið kvöldið. Þá urðu tafir á hundruðum flugferða í gær vegna lokunarinnar á flugvöllum um alla Evrópu. Flugum Wow air og Icelandair til London síðdegis í gær seinkaði um tvær klukkustundir og kvöldflugi flugfélaganna aftur til Keflavíkur seinkaði um klukkustund. Talið er að tafir á flugumferð geti áfram orðið í dag, laugardag, vegna lokunar lofthelginnar í gær. Martin Rolfe, talsmaður NATS, félagsins sem rekur flugstjórnarstöðina í Swanwick sagði að orsök bilanarinnar væri ókunn en rannsókn stæði yfir. Rolfe gat þó sagt að búið væri að útiloka árás hakkara á tölvukerfið. Samgönguráðherra segir truflanirnar óásættanlegar Patrick McLoughlin, samgönguráðherra Bretlands, var afar ósáttur við stöðuna. „Truflanirnar af þessari stærðargráðu eru óásættanlegar og ég hef farið fram við NATS að atvikið sem átti sér stað í kvöld til hlítar,“ hefur The Guardian eftir McLoughlin. Bilanir í flugstjórnarstöðinni Swanwick hafa verið tíðar síðan stjórnstöðin opnaði árið 2002, sex árum á eftir áætlun. Kostnaður við byggingu stjórnstöðvarinnar fór tvöfalt fram úr kostnaðaráætlun. Ár er síðan að bilun kom upp í símkerfi stjórnarstöðvarinnar sem olli meiriháttar truflun á flugi.
Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Erlent „Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“ Innlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent Ingólfur leysir Baldur af Innlent Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Laga þurfi fegurðarskynið að orkuskiptum Innlent Útkall lengst úti á hafi þriðja daginn í röð Innlent Fleiri fréttir Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Sjá meira