Vítishraðbrautin vinsæl við jarðarfarir Atli Steinn Guðmundsson skrifar 4. júlí 2008 09:01 Sviðsframkoma piltanna í AC/DC minnir síst á kórdrengi en tónlist þeirra er þó farin að skipa veglegan sess við útfarir.
Ástralar eru þjóðlegir þegar kemur að hinstu kveðjunni og velja nú í auknum mæli innlenda tónlist við kveðjuathöfnina. Það er Highway to Hell með áströlsku rokksveitinni AC/DC sem er á hraðri siglingu upp vinsældalistann þar í landi sem útfararsálmur. Talsmenn stærstu útfararþjónustunnar í borginni Adelaide segja að mörg óhefðbundin lög virki í raun mjög vel við jarðarförina þar sem yfirleitt túlki þau persónu hins látna hvað best - enda valin af honum eða henni. Rokkararnir gömlu í AC/DC eru þó ekki nálægt því að velta Frank Sinatra úr sessi sínum í toppsæti vinsældalistans en hann syngur lagið My Way við flestar ástralskar útfarir. Nú er svo komið að aðeins tveir eiginlegir sálmar eru meðal tíu vinsælustu útfarartónverkanna og eiga þeir í vök að verjast meðal laga eftir Monty Python og Led Zeppelin. Hér má geta þess að fréttaneytandi hafði samband við ritstjórn Vísis og kvaðst hafa áreiðanlegar heimildir fyrir því að Bretar létu Simpy Red gjarnan syngja sig til hinstu hvílu með laginu If you don't know Me by now og stakk að auki upp á því að Íslendingar gripu til lagsins Komdu og skoðaðu í kistuna mína við útfarir sínar.
Mest lesið Látinn eftir líkamsárás en árásarmaðurinn gengur laus Innlent Orri Harðarson er allur Innlent Maðurinn á Esjunni er fundinn Innlent Greta Thunberg á leið heim til Svíþjóðar Erlent „Þetta er glórulaust rugl í ráðherra“ Innlent Nafn mannsins sem drukknaði við Örfirisey Innlent Níu látnir eftir skotárás í Austurríki Erlent Leitin ekki enn borið árangur Innlent Rekur bólusetningaráð stjórnvalda á einu bretti Erlent Guðrún spyr um há laun æðstu ráðamanna Innlent Fleiri fréttir Kona látin eftir stunguárás í Noregi Þungi færist í árásir Rússa: „Þetta er orðið partur af okkar lífi“ Rússar líta ekki lengur á Bandaríkin sem sinn helsta óvin Rekur bólusetningaráð stjórnvalda á einu bretti Einar hörðustu árásirnar á Kænugarð til þessa Níu látnir eftir skotárás í Austurríki Hundruð milljóna um allan heim muni eignast færri börn en þau vilja Greta Thunberg á leið heim til Svíþjóðar Sendir tvö þúsund þjóðvarðliða til viðbótar til Los Angeles Sjö hundruð landgönguliðar á leið til Los Angeles Newsom ætlar að kæra Trump Sannfærð um sakleysi eiginmannsins og segir hann hetjuna sína Skotin með gúmmíkúlu í beinni frá mótmælunum Ísraelsher stöðvaði skútuna og handtók áhöfnina Telja Ísraelsher hafa umkringt bát Thunberg Forsetaframbjóðandi skotinn í höfuðið Grafalvarlegt ástand í LA: „Þetta eru einhverjar fasískar leikaðferðir“ Rannsökuðu eigin samsæriskenningar um fljúgandi furðuhluti Ísraelsmenn undirbúi árás á skútuna með Gretu Thunberg um borð Hótar Musk alvarlegum afleiðingum styðji hann Demókrata Trump sendir þjóðvarðlið til Los Angeles Danskar herþotur verða staðsettar á Grænlandi Tók 12 ár að breyta reglum um bætur vegna seinkun flugferða Grófu látin og særð börn upp úr rústum Wagner yfirgefur Malí í skugga mikilla árása Mótmæli og átök eftir áhlaup ICE í Los Angeles Aftur logar eldur í Læradal Deilurnar halda áfram og Musk boðar „Ameríkuflokkinn“ Stærsta árásin á Kharkív hingað til Var fluttur óvart úr landi en er snúinn aftur Sjá meira