Oliver ræðst gegn „feitustu borgum“ Bandaríkjanna Atli Steinn Guðmundsson skrifar 11. maí 2009 08:17 Jamie Oliver.
Heilu borgirnar í Bandaríkjunum fá brátt að finna fyrir kokkinum Jamie Oliver og megrunarráðum hans. Kokkurinn klæðalausi, eins og hann kallar sig í sjónvarpsþáttum sínum í bresku sjónvarpi, hefur nú bundist samkomulagi við ABC-sjónvarpsstöðina bandarísku um nýja þáttaröð þar sem Oliver ferðast til nokkurra af óheilbrigðustu borgum Bandaríkjanna, eins og það er orðað, og setur ofátinu stólinn fyrir dyrnar með linnulausri megrunarráðgjöf og hollustukennslu. Að minnsta kosti sex klukkustundir af slíku sjónvarpsefni eru væntanlegar og hugsanlega meira ef Bandaríkjamenn taka sönsum og ná stjórn á ummálinu áður en í virkilegt óefni er komið - sem margir vilja nú meina að hafi gerst fyrir löngu þar vestra. Oliver er sagður græða á feiknagóðu orðspori sínu og þátta sinna í Bretlandi og muni það skila honum miklu í þáttunum á ABC. Bandaríkjamenn hafa verið iðnir við að hugsa upp raunveruleikaþætti sem tengjast offitu og er þáttur ABC hugsaður sem svar við þætti NBC, The Biggest Loser, þar sem þátttakendur keppa í megrun fyrir framan myndavélarnar. Nafn nýju þáttaraðarinnar liggur ekki fyrir enn sem komið er og ekki hefur heldur verið birtur listi yfir feitustu borgir Bandaríkjanna en hans er þó beðið með eftirvæntingu.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Sjá meira