Bush leggur fram áætlun 11. janúar 2007 04:00 Bandarískir hermenn í Bagdad Þeir fá liðsauka ef Bush fær sínu framgengt. fréttablaðið/AP
George W. Bush Bandaríkjaforseti gerði í nótt grein fyrir nýrri Íraksstefnu sinni, sem hann hefur haft í smíðum allt frá því í haust þegar ljóst varð að fyrri stefna hafði kostað Repúblikanaflokkinn meirihlutastöðu sína á Bandaríkjaþingi. Í gær var einnig fastlega reiknað með því að Bush myndi í ræðu sinni viðurkenna að alvarleg mistök hefðu verið gerð í Írak, ekki síst með því að láta Íraksstjórn komast upp með að leyfa vígasveitum bæði súnní-múslíma og sjía að leika lausum hala í Bagdad. Bandarískir fjölmiðlar höfðu skýrt frá því í gær að Bush hyggist í nokkrum áföngum fjölga bandarískum hermönnum um 21.500 í Írak. Flestir þeirra verði sendir til höfuðborgarinnar Bagdad, þar sem meiningin er að stöðva eftir föngum átök milli súnnía og sjía, en 4.000 hermenn fari til Anbar-héraðs þar sem ástandið hefur einnig verið afar slæmt. Þá er meiningin að bandarískir hermenn gangi til liðs við íraskar öryggissveitir í því skyni að þjálfa þær, svo þær geti síðar meir tekið við af bandaríska hern-um. Enn fremur hyggst Bush veita um einum milljarði dala til þess að efla efnahag Íraks. Óvíst er hvort honum takist að sannfæra Demókrataflokkinn, sem nú fer með meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings, um þessa nýju stefnu sína. Nancy Pelosi, leiðtogi demókrata í fulltrúadeildinni, er staðráðin í að láta þingið greiða atkvæði um það hvort fjölgað verði í herliðinu í Írak. Þá ætla leiðtogar demókrata í öldungadeildinni að fá einhverja repúblikana í lið með sér til að lýsa andstöðu gegn því að fjölgað verði í herliðinu. Íraksstríðið hefur nú staðið yfir í nærri fjögur ár og átökin harðna jafnt og þétt. Mannfallið á síðasta ári varð meira en nokkru sinni og nú allra síðustu daga hafa heiftarlegir bardagar geisað í höfuðborginni Bagdad. Á þriðjudaginn börðust bæði Bandaríkjamenn og hermenn sjía-stjórnarinnar við súnní-múslíma í Haífa-stræti í Bagdad og týndu þar fimmtíu manns lífinu, allt saman súnníar. Nouri al-Maliki Íraksforseti boðaði fyrr í mánuðinum hertar aðgerðir í Bagdad til að draga úr átökum þar í borginni og nú í vikunni sögðu íraskir ráðamenn að fyrstu áfangar þessara aðgerða væru nú þegar komnir til framkvæmda.
Mest lesið Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Erlent Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Innlent „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Innlent Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Erlent Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Innlent Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni Innlent „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Erlent Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna Innlent Fleiri fréttir Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Mótmæla banni gegn grænkera „pylsum“ og „hamborgurum“ Gróðurhúsalofttegundir ekki lengur skaðlegar samkvæmt Trump Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins ICE dregur saman seglin í Minneapolis Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Greiða atkvæði um hámarksfjölda Svisslendinga Jagland ákærður fyrir spillingu Sprengdu blöðrur með herleysigeisla áður en lofthelginni var lokað Táningsdóttir Kims formlegur arftaki hans Pútín þjarmar að vinsælasta samfélagsmiðli Rússlands Íhugar að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda Efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um þak á íbúafjölda landsins Gallup hættir að mæla ánægju með Bandaríkjaforseta eftir níutíu ára samfellda sögu Fulltrúadeildin samþykkir að fella niður tolla Trump gegn Kanada Leita fórnarlamba fransks barnaníðings sem braut á börnum um allan heim Talin hafa myrt móður sína og stjúpbróður fyrir skotárásina „Þjóðin syrgir með ykkur“ Leitarheimild byggði á löngu afsönnuðum ásökunum um svindl Opna aftur á flugumferð í El Paso eftir drónaflug frá Mexíkó Opnar sig í nýrri bók: „Ég þekkti ekki þessa menn eða þessa konu“ Íri í haldi ICE óttast um líf sitt Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Loka flugvelli El Paso skyndilega og án útskýringa Jagland sviptur friðhelgi Sjá meira