Erlent

Þrír látast úr fuglaflensu

Yfirvöld í Indónesíu staðfestu í morgun að þrír Indónesar hefðu látist úr fuglaflensu. Rannsókn á líkum mannanna þriggja í Hong Kong staðfesti dánarorsökina. Þetta eru fyrstu Indónesarnir sem látast úr fuglaflensu. Í gær var greint frá því að fuglaflensuvírusinn hefði stökkbreyst og bærist nú með öndum sem sýndu engin einkenni. Óttast er að nýr faraldur kunni að vera í aðsigi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×