Erlent

Þrír menn fórust í flóðunum

Íbúar bæjarins Beverley í Jórvíkurskíri vaða elginn á götu í bænum.
Íbúar bæjarins Beverley í Jórvíkurskíri vaða elginn á götu í bænum. fréttablaðið/ap

 Íbúar í borgum og bæjum víðs vegar um England voru í gær í óða önn að dæla upp úr kjöllurum og ryðja vatnselgnum af götum og torgum eftir að úrhellisrigningar ollu skaðræðisflóðum sem urðu þremur mönnum að fjörtjóni.



Yfirvöld vöruðu þó við því að hætta af völdum vatnsveðursins væri ekki liðin hjá. Í bænum Rotherham, 275 km norður af Lundúnum, hvöttu yfirvöld íbúa húsa í grennd við Ulley-stífluna til að yfirgefa þau í varúðarskyni, þar sem sprungur hefðu myndast í stífluveggnum við skyndilega yfirfyllingu forðalónsins og verkfræðingar teldu verulega hættu á að stíflan brysti.



Í Sheffield, þar sem aldrei hefur rignt eins mikið á eins stuttum tíma síðan mælingar hófust, eyddu hundruð íbúa nóttinni í bráðabirgðaskýlum. Fjórtán ára drengur og 68 ára karlmaður drukknuðu í flóðinu í Sheffield. Stór hluti borgarinnar var rafmagnslaus og talsmenn borgaryfirvalda sögðu tjónið geta numið andvirði hundraða milljóna króna.

Í útgerðarbænum Hull fórst 28 ára gamall karlmaður er hann festist í niðurfalli, sem ekki tókst að losa hann úr þrátt fyrir tilraunir björgunarliðs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×