Messi lauk "markaþurrð“ með fernu

Sindri Sverrisson skrifar
Lionel Messi var glaðbeittur á Camp Nou í dag enda gekk honum allt í haginn.
Lionel Messi var glaðbeittur á Camp Nou í dag enda gekk honum allt í haginn. vísir/getty

Lionel Messi skoraði þrennu í fyrri hálfleik og fjögur mörk alls þegar Barcelona valtaði yfir Eibar í spænsku 1. deildinni í fótbolta, 5-0.

Messi hafði ekki skorað í fjórum leikjum í röð fyrir Barcelona, sem telst óvanalegt á þeim bænum, en var í miklu stuði í dag. Hann hefur nú skorað 18 mörk í deildinni í vetur og er markahæstur.

Danski landsliðsframherjinn Martin Braithwaite lék sinn fyrsta leik fyrir Barcelona þegar hann kom inn á í stað Antoine Griezmann á 72. mínútu, og hann átti stóran þátt í síðustu tveimur mörkum Barcelona.

Barcelona komst með sigrinum upp fyrir Real Madrid, er með 55 stig eftir 25 leiki, en Real á leik til góða við Levante í kvöld og getur með sigri komist í 56 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira