Reyndi að leita hjálpar en var dregin upp í bíl Samúel Karl Ólason skrifar 2. janúar 2020 20:56
Lögreglan í Las Vegas birti í gær myndband sem sýndi konu sem virtist vera á flótta undan mannræningja. Konan hljóp grátandi upp að hurð á húsi og barði á hurðina. Enginn virtist þó hafa verið heima og kom maður hlaupandi á eftir henni. Hann gekk í skrokk á konunni og dró hana upp í bíl. Þegar maðurinn nálgaðist konuna kallaði hún á hann og sagði: „Hættu, Darnell. Gerðu það.“ Hann hljóp þó á konuna, henti henni í jörðina, sparkaði í hana og dró hana upp í bíl sem konan hafði hlaupið úr. Þetta gerðist skömmu eftir miðnætti á gamlárskvöld en atvikið náðist á öryggismyndavél á heimilinu. Lögreglan birti myndbandið í von um að einhverjir gætu borið kennsl á fólkið. Það bar árangur og með ábendingum frá almennum borgurum tókst rannsóknarlögreglumönnum að bera kennsl á manninn. Hann heitir Darnell Rodgers og var handtekinn í dag. Rodgers, sem er 23 ára gamall, á meðal annars yfir höfði sér ákærur fyrir mannrán og líkamsárás. Lögreglan hefur ekki gefið út upplýsingar um konuna og hvort henni hafi verið rænt eða hvort að um heimilisofbeldi hafi verið að ræða. Hér fyrir neðan má sjá myndbandið sem lögregla birti en rétt er að vara viðkvæma við því.
Bandaríkin Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira