Erlent

Breytingar framundan í stjórnarfari Kyrgistans

Þjóðhöfðingi Kyrgistans, Kurmanbek Bakiyev, komst í dag að samkomulagi við stjórnarandstöðuna í landinu um drög að stjórnarskrá sem takmarkar völd þjóðhöfðingans og veitir meiri völdum til þjóðþingsins. Leiðtogar stjórnarandstöðunnar segja drögin verða lögð fyrir þingið til samþykkis á fimmtudag.

"Þetta verður blandað stjórnarfar þar sem forseti og þjóðþing deila völdunum en þjóðþingið hefur þó meiri völd en forsetinn," segir Melis Eshimankov, þingmaður stjórnarandstöðunnar sem hefur verið í samninganefnd. Ríkisstjórnin mun þurfa að segja af sér ef tillagan að stjórnarskrárbreytingu verður samþykkt, þá mun þingið skipa nýja stjórn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×