Erlent

Róstur á upphafsdegi réttarhalda

Uppreisnarmenn úr hópi súnnía myrtu nítján manns í Írak á opnunardegi réttarhaldanna yfir Saddam Hussein. Versta tilræðið var framið í verksmiðju skammt suður af Bagdad. Þar ruddust grímuklæddir menn inn og neyddu verkamennina til að segja sér hvaða trúarhópi þeir tilheyrðu. Þeir tóku svo sex sjía úr hópnum og skutu þá til bana. Þá voru þrír menn myrtir sem voru á leið heim frá talningu atkvæða úr þjóðaratkvæðagreiðslunni sem haldin var á laugardaginn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×