Erlent

Rice útilokar ekki langa hersetu

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, neitaði í gær að útiloka að bandarískir hermenn kynnu að verða í heilan áratug enn í Írak né að hervaldi yrði beitt gegn Sýrlandi eða Íran. Rice vísaði á George W. Bush Bandaríkjaforseta og yfirmenn hersins er þingmenn í utanríkismálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings þrýstu á hana að gefa frekari skýringar á stefnu Bandaríkjastjórnar í Írak og Mið-Austurlöndum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×