Erlent

Blóðugasta tímabil frá innrásinni

Fjórir létust og þrír særðust í árásum í suðurhluta Afganistans í gærkvöldi. Einn hinna látnu var yfirmaður í héraðsstjórn Kandahar-héraðs en hann var skotinn þar sem hann var á bæn í mosku. Þá var skólastjóri einnig á meðal þeirra sem voru myrtir. Talíbanar eru sagðir ábyrgir fyrir ódæðunum en árásir þeirra hafa aukist mjög í októbermánuði. Um ellefu hundruð manns hafa fallið í átökum í Afganistan það sem af er þessu ári, sem er þar með það blóðugasta síðan Bandaríkjamenn réðust inn í landið fyrir fjórum árum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×