Erlent

Clarke dottinn úr leik

Kenneth Clarke, fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands, er dottinn úr leik í baráttunni um það hver verði næsti leiðtogi breska Íhaldsflokksins en Clarke fékk fæst atkvæði. Kosið verður að nýju á fimmtudag um þá þrjá sem eftir eru en þeir eru Liam Fox, David Cameron og David Davis en sá síðasti fékk flest atkvæði í kosningunni. Lokaatkvæðagreiðslan um þá tvo sem fá flest atkvæði á fimmtudag fer fram í desember.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×