Herferð gegn Darwinisma 23. október 2005 17:57
Birtust dýrin á jörðinni nánast fullsköpuð eða hefur lífið þróast frá einföldum örverum til þeirrar fjölbreytilegu fánu og flóru sem þrífst hér í dag? Um þetta er tekist frammi fyrir dómstól í Pennsylvaníu þessa dagana. Á síðustu árum hefur hinni svonefndu heimshönnuðarkenningu (intelligent design) vaxið fiskur um hrygg í Bandaríkjunum og hafa sumir skólar tekið hana upp í kennslubækur sínar sem valkost við þróunarkenningu Darwins. Það eru ekki síst kristnir íhaldsmenn sem tekið hafa kenningunni fagnandi og meðal annars er vitað að Bush forseti er áhugasamur um hana. Megininntak kenningarinnar er að jarðlífið hafi vissulega þróast í gegnum þúsaldirnar en útilokað er að þróunin hafi orðið með jafn róttækum og handahófskenndum hætti og þróunarkenning Charles Darwin gerir ráð fyrir. Einhvers konar skapari hljóti að hafa verið að verki, en eðli hans er þó ekki útskýrt nánar. Enda þótt ekki sé gengið eins langt í heimshönnuðarkenningunni og sköpunarkenningum kristinna trúfélaga telja margir að hún sé einungis illa dulbúin tilraun til að lauma kristnum trúarkenningum inn í bandarískt skólakerfi, en slíkt brýtur í bága við stjórnarskránna. Gagnrýnendur kenningarinnar telja auk þess að talsmenn hennar setji aldrei fram nein rök fyrir kenningunni önnur en þau að benda á annmarka þróunarkenningarinnar. Á dögunum stefndu foreldrar nokkurra barna við grunnskólann í Dover í Pennsylvaníu skólastjórninni fyrir að halda kenningunni að börnum þeirra og standa málaferli nú yfir í ríkishöfuðborginni Harrisburg. Réttarhöldin hafa að vonum vakið mikla athygli í Bandaríkjunum enda er deiluefnið hápólitískt. Tvo síðustu daga hefur Michael J. Behe, prófessor í lífefnafræði við Lehigh University, borið vitni fyrir dóminum en hann er einn af harðari talsmönnum heimshönnuðarkenningarinnar innan vísindasamfélagsins. Meðal annars hélt Behe því fram í fyrradag að þróunarkenningin gæti ekki ein og sér útskýrt margbreytilega jarðlífsins og að hann væri persónulega þeirrar skoðunar að Guð væri á bak við sköpunina. Behe líkti því næst heimshönnuðarkenningunni og viðbrögðunum við henni við kenningum um Miklahvell sem fram komu fyrir um sjötíu árum og eru í dag almennt taldar útskýra upphaf alheimsins. „Margir töldu þær kenningar vera meira í ætt við heimspeki og jafnvel guðfræði og því féllu þær ekki strax í kramið." Búist er við að réttarhöldin muni standa í að minnsta kosti fimm vikur.
Erlent Fréttir Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira