Erlent

730 kíló af heróíni gerð upptæk

Lögregluyfirvöld í Kína og nágrannaríkinu Myanmar gerðu tæplega 730 kíló af heróíni upptæk á dögunum sem smygla átti yfir landamærin til Kína. Sjötíu manns voru handteknir í aðgerðinni auk þess sem hald var lagt á töluvert magn vopna og tugi milljóna í bandarískum dollaraseðlum. Undirbúningur aðgerðarinnar hafði staðið yfir í ellefu mánuði. Götuvirði heróínsins er talið vera á fimmta milljarð íslenskra króna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×