Búa sig undir skjóta lokun 22. desember 2008 05:00 Nadja Dizdarevic beið á þriðjudaginn heimkomu eiginmanns síns á flugvelli Sarajevóborgar, ásamt börnum þeirra. Eiginmaðurinn, Boudella Al Hajj, var einn þriggja sem látinn var laus úr Guantanámobúðunum í vikunni. Nordicphotos/AFP
Robert Gates, varnarmálaráðherra í ríkisstjórn George W. Bush, hefur beðið starfsfólk sitt í varnarmálaráðuneytinu um að búa sig betur undir hugsanlega lokun Guantánamo-fangabúðanna á Kúbu. Gates verður áfram varnarmálaráðherra þegar Obama tekur við í janúar, en Obama hefur sagt að það verði forgangsverkefni sitt að loka þessum illræmdu fangabúðum. Nú í vikunni var einn fangi látinn laus úr búðunum eftir nærri sex ára vist þar. Mustafa Ait Idr heitir hann, er 38 ára gamall bosnískur ríkisborgari en upprunalega frá Alsír. Hann segir að sér hafi verið misþyrmt og hann verið niðurlægður meðan á fangavistinni stóð. „Ekkert er verra en það,“ sagði hann í viðtali við sjónvarpsstöðina Hayat eftir að hann kom til Bosníu á þriðjudag, og fullyrti að Guantánamo-búðirnar væru versti staður sem hægt væri að ímynda sér. Hann segir einn fingra sinna hafa verið brotinn í yfirheyrslum og að fangaverðir hafi lítilsvirt Kóraninn, hina helgu bók múslima, með því að kasta honum inn á salerni, rífa blöð úr honum og setjast á hann. „Þeir misþyrmdu okkur, ekki vegna þess að við værum hryðjuverkamenn heldur vegna þess að við erum múslimar,“ segir hann. Ait Idr var handtekinn í Bosníu árið 2001 ásamt tveimur öðrum Bosníumönnum, sem einnig voru fæddir í Alsír. Þeir voru grunaðir um að hafa ætlað að gera sprengjuárás á bandaríska sendiráðið í Sarajevó. Í ársbyrjun 2002 voru þeir fluttir til Guantánamo, en Bandaríkjastjórn segir nú að engar þær sannanir séu fyrir hendi sem myndu duga til að sakfella þá. Það var Richard J. Leon, héraðsdómari í Bandaríkjunum, sem í nóvember kvað upp þann úrskurð að mennirnir þrír, ásamt tveimur öðrum Alsírmönnum, skyldu látnir lausir. Hann segir að einu vísbendingarnar um tengsl þeirra við hryðjuverkasamtökin Al Kaída komi frá einum heimildarmanni, sem ekki er nafngreindur. Sú heimild geti engan veginn talist trúverðug ein og sér. „Meira að segja Bandaríkjamennirnir sögðu mér: Við vitum ekki hvers vegna þú ert hérna,“ sagði Ait Idr, og sagðist vonast til þess að Barack Obama léti fljótlega loka þessum fangabúðum.
Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Innlent Fleiri fréttir Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Sjá meira