Erlent

Grafin lifandi

Eldri hjón sem fundust látin í grunnri gröf á laugardaginn virðast hafa verið grafin lifandi. Lögregla í Flórída staðfesti þetta í gær. "Dánarorsök Carol og James Sumner var köfnun. Það þýðir með öðrum orðum að þau voru grafin lifandi," sagði Ken Jefferson, talsmaður lögreglunnar í Jacksonville. Tekið var að óttast um hjónin 10. júlí. Fyrir nokkrum dögum var svo nágranni þeirra handtekinn, 23 ára gömul stúlka, og tveir vinir hennar. Þau voru með greiðslukort Sumner-hjónanna í sínum fórum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×