Innlent

Flugfélag Íslands tíu ára

Flugfélag Íslands er tíu ára í dag en félagið varð til með sameiningu innanlandsflugsdeildar Flugleiða og Flugfélags Norðurlands árið 1997. Á þessum tíu árum hefur félagið flutt um þrjár milljónir farþega. Á síðasta ári flutti félagið 370 þúsund farþega.

Meðal nýjunga hjá félaginu í ár er áætlunarflug til Nuuk á Grænlandi með nýjum flugvélum félagsins að gerðinni Dash 8. Þá býður félagið upp á beint flug milli Akureyrar og Keflavíkur í samvinnu við millilandaflug Icelandair. Áfangastaðir Flugfélags Íslands innanlands eru nú níu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×