Erlent

Krísan á enda

Romano Prodi forsætisráðherra    Ítalíu Fagnaði eftir að úrslit atkvæðagreiðslunnar í öldungardeildinni urðu ljós þar sem hann vann nauman sigur.
Romano Prodi forsætisráðherra Ítalíu Fagnaði eftir að úrslit atkvæðagreiðslunnar í öldungardeildinni urðu ljós þar sem hann vann nauman sigur.

Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, hlaut stuðning meirihluta þingmanna í neðri deild ítalska þingsins í kosningu í gær. Þar með er pólitískri krísu síðustu vikna lokið.

Fyrr í vikunni vann Prodi naumlega kosningu um stuðningsyfirlýsingu við hann í öldungadeild ítalska þingsins.

Enn ríkir þó vafi um hversu vel ríkisstjórn Prodis muni ganga með nauman þingmeirihluta en að henni standa flokkar allt frá Kommúnistaflokknum til Kristilegra demókrata.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×