Erlent

Króatar vilja nú semja við Serba

Dómarar Alþjóðadómstólsins.
Hik er komið á Króata eftir úrskurðinn gegn Serbíu.
Dómarar Alþjóðadómstólsins. Hik er komið á Króata eftir úrskurðinn gegn Serbíu. MYND/AP

Ivan Simonovic, fulltrúi Króatíu hjá Alþjóðadómstólnum í Haag, segir að hugsanlega muni Króatía falla frá ákæru á hendur Serbíu fyrir þjóðarmorð, eftir að dómur er fallinn í sambærilegu máli Bosníu á hendur Serbíu.

Dómstóllinn sýknaði Serbíu af þjóðarmorðsákæru Bosníumanna, en sagði jafnframt að Serbar hefðu brugðist skyldum sínum með því að gera ekki allt sem þeir gátu til að koma í veg fyrir þjóðarmorðið í Srebrenica árið 1995.

Simonovic segir að Króatar muni líklega reyna að semja beint við Serba um bætur, en láta því aðeins reyna á dómsmálið að engir samningar takist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×