Erlent

James Bond - ofurhuginn deyr í slysi í Ölpunum

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Mark Sutton er til vinstri á myndinni, íklæddur svifbúning.
Mark Sutton er til vinstri á myndinni, íklæddur svifbúning.
Breski ofurhuginn, Mark Sutton sem sveif svo eftirminnilega sem James Bond inn á opnunarhátíð Ólympíuleikanna í London í fyrra, lést í gær í slysi í svissnesku Ölpunum. Þetta kemur fram í frétt Daily Mail.

Mark stökk úr þyrlu í um 3.300 metra hæð íklæddur svifbúning. Hann flaug á fjallshrygg og talið er að hann hafi látist samstundis. Líkið af Mark var svo illa farið að það þurfti að gera DNA-rannsókn til að staðfesta að þetta væri hann.

Rannsókn á slysinu stendur yfir. Lögreglan á staðnum segir að veðrið hafi verið gott en flugmenn eigi það til að fljúga of nálægt jörðu eða hlíðum fjallanna. Þegar farið er á þeim hraða sem Mark fór á, allt að 200 kílómetra hraða, má lítið út af bregða til þess að illa geti farið. Einnig er verið að rannsaka hvort að vindar hafi verið óhagstæðir á þessum tíma.

Síðustu orð Mark voru: „Fyrsta skipti hér og elska það!“

Hér fyrir neðan má sjá myndbönd sem sýna Mark Sutton svífa inn á opnunarhátíð Ólympíuleikana og annað myndband sem sýnir Mark fljúga í svifbúning.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×