„Eins og spila manni færri þegar Sturridge skorar ekki“ Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. janúar 2017 09:30
Liverpool féll úr leik í enska deildabikarnum í gær eftir 1-0 tap gegn Southampton, 2-0 samanlagt, í undanúrslitum í gær. Liverpool þurfti að skora á heimavelli í gær til að fá leikinn í framlengingu en tókst ekki. Shane Long tryggði Southampton sigurinn með marki eftir skyndisókn undir lok leiksins. Daniel Sturridge spilaði í framlínu Liverpool en hann fór illa með nokkur færi sem hann fékk í leiknum. Sturridge hefur glímt við tíð og þrálát meiðsli síðan hann kom til Liverpool frá Chelsea árið 2013 og Jamie Carragher, fyrrum varnarmaður Liverpool og sérfræðingur, segir að hann sé breyttur leikmaður.+ Sjá einnig: Southampton á Wembley í fyrsta sinn í 38 ár | Sjáðu markið „Sturridge er gjörólíkur leikmaður í dag. Það væri hægt að líkja honum við Sadio Mane þegar hann kom fyrst því að tilgangurinn með því að kaupa hann á sínum tíma var að nýta hraðann hans til að komast í gegnum varnir andstæðings,“ sagði Carragher eftir leikinn í gær. „Í eitt sinn í kvöld þá lenti hann á auglýsingaskiltunum fyrir framan Kop-stúkuna en mér fannst að hann hefði átt að ná boltanum. Ég veit ekki hvort að hann sé búinn að missa hraðann sinn eða vilji einfaldlega ekki taka áhættu vegna meiðsla,“ sagði hann enn fremur. Carragher segir að Sturridge er ekki lengur leikmaður sem geti stungið sér á bak við varnarmenn og hann sé því ekki góður staðgengill fyrir Mane. Sjá einnig: Klopp: Heppnin var ekki með okkur „Eina ástæðan fyrir því að vera með Sturridge í liðinu er að hann getur klárað færi. En það verður að færa honum færin á silfurfati. Liverpool gerði það í þessum leik og hann nýtti ekki færin.“ „Þannig a þegar að leikmenn eins og hann nýta ekki færin sín þá er þetta í raun eins og að spila manni færri. Framherjar eins og Sturridge hafa í raun ekkert annað fram að færa.“
Enski boltinn Tengdar fréttir Southampton á Wembley í fyrsta sinn í 38 ár | Sjáðu markið Southampton er komið í úrslit enska deildarbikarsins í fyrsta sinn í 38 ár eftir 0-1 sigur á Liverpool á Anfield í kvöld. Shane Long skoraði eina mark leiksins í uppbótartíma. 25. janúar 2017 22:00 Klopp: Heppnin var ekki með okkur Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, sagði að heppnin hefði ekki verið með sínum mönnum í liði gegn Southampton í kvöld. 25. janúar 2017 22:40 Mest lesið Ofurhlaupari lést á skoska hálendinu Sport „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Kjósa um hvort næsta tímabili Sveindísar verði snúið við Fótbolti Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti KA - Víkingur | Meistararnir á Akureyri Íslenski boltinn KR - Þór Ak. 5-2 | Veisla í Vesturbæ Íslenski boltinn Uppgjör: Valur-ÍBV 2-1 | Hólmar tryggði Val fyrsta sigur sumarsins Íslenski boltinn Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Fleiri fréttir Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Sjá meira
Southampton á Wembley í fyrsta sinn í 38 ár | Sjáðu markið Southampton er komið í úrslit enska deildarbikarsins í fyrsta sinn í 38 ár eftir 0-1 sigur á Liverpool á Anfield í kvöld. Shane Long skoraði eina mark leiksins í uppbótartíma. 25. janúar 2017 22:00
Klopp: Heppnin var ekki með okkur Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, sagði að heppnin hefði ekki verið með sínum mönnum í liði gegn Southampton í kvöld. 25. janúar 2017 22:40