Leboeuf og Desailly hafa ekki trú á Chelsea Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. desember 2010 17:15 Frank Leboeuf. Nordic Photos / AFP
Frakkarnir Frank Leboeuf og Marcel Desailly hafa ekki trú á því að Chelsea muni verja titil sinn í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð. Chelsea hefur gengið illa að undanförnu og ekki unnið í síðustu fimm deildarleikjum sínum. Liðið er fallið af toppnum og er nú í fjórða sæti deildarinnar. Chelsea hefur ekki þurft að bíða svo lengi eftir sigri í áratug. „Ég elska félagið og það er erfitt fyrir mig að gagnrýna það," sagði Leboeuf. „En ég sagði í upphafi tímabilsins að Chelsea myndi ekki vinna titilinn." „Þegar ég félagið komst svo á toppinn á haust velti ég því fyrir mér hvort ég vissi nokkuð um fótbolta lengur. En nú hefur sannleikurinn komið í ljós og hvernig félagið og þessir leikmenn eru í raun og veru." „Það þarf að gera eitthvað í lok tímabilsins - selja og kaupa leikmenn. Þeir stóðu sig ekki illa gegn Tottenham en fyrir 1-2 árum síðan hefði Chelsea unnið þennan leik. Mér finnst að Chelsea sé ekki Chelsea lengur og finnst mér það leiðinlegt. Liðið er komið á endastöð." Leboeuf var í fimm ár hjá Chelsea og Desailly í sex. Sá síðarnefndi segir að liðið verði að vinna Manchester United á sunnudaginn til að bjarga tímabilinu. „Chelsea mun áfram vera við toppinn en ég er ekki viss um að þeim takist að vinna titilinn. Leikurinn gegn United er frábært tækifæri fyrir leikmenn sem vilja sanna sig."
Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Fleiri fréttir „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Sjá meira