Erlent

Bin Laden vildi ráða Obama af dögum

Áætlun Osama gerði ráð fyrir að Obama yrði ráðinn af dögum og að varaforseti Bandaríkjanna, Joe Biden, myndi taka við embættinu.
Áætlun Osama gerði ráð fyrir að Obama yrði ráðinn af dögum og að varaforseti Bandaríkjanna, Joe Biden, myndi taka við embættinu. mynd/AFP
Osama bin Laden, fyrrverandi leiðtogi al-Qaeda, fyrirskipaði undirmönnum sínum að drepa Barack Obama, Bandaríkjaforseta, og David Petraeus hershöfðingja, fyrrverandi leiðtoga herafla Bandaríkjanna í Afganistan.

Ítarlegar leiðbeiningar frá Osama fundust í byrgi hans í bænum Abbottabad í Pakistan. Þar skipar Osama mönnum sínum að herða árásir sínar í Bandaríkjunum.

Leiðbeiningarnar, sem eru 48 blaðsíður að lengd, voru stílaðar á undirmann bin Ladens, Atiyah Abd al-Rahman.

Áætlun Osama gerði ráð fyrir að Obama yrði ráðinn af dögum og að varaforseti Bandaríkjanna, Joe Biden, myndi taka við embættinu. Osama taldi Biden ekki geta stjórnað Bandaríkjunum og að vanhæfi hans myndi gera al-Qaeda auðveldara fyrir að framkvæma hryðjuverkaárásir í Bandaríkjunum.

Osama krafðist þess að hryðjuverkamaðurinn Ilyas Kashmiri myndi framkvæma árásina. Kashmiri lést í sprengjuárás Bandaríkjanna í júní á síðasta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×