Dópaði ungbörn til þess að komast í brúnkusprautun Nína Hjördís Þorkelsdóttir skrifar 11. mars 2018 21:59 Sum barnanna voru undir eins árs aldri. Visir/pe
January Neatherlin, 32 ára dagmamma í Oregon, hlaut 21 árs fangelsisdóm fyrir vanrækslu á börnum. Henni var meðal annars gefið að sök að byrla börnum sem voru í hennar umsjá svefnlyf. Washington Post greinir frá. Neatherlin lagði í vana sinn að gefa börnunum melatónín í hádeginu en meðan þau sváfu skrapp hún í ýmsar útréttingar, til að mynda á CrossFit æfingu og í brúnkusprautun. Neatherlin gaf foreldrum barnanna skýr fyrirmæli um að heimsækja dagheimilið ekki á milli ellefu og tvö og lét þá útskýringu fylgja að börnin svæfu á þeim tíma. Neatherlin á langan glæpaferil að baki en árið 2007 var hún dæmd fyrir auðkennisstuld og þjófnað. Þá hafði hún einnig logið að foreldrum barnanna sem hún gætti að hún væri menntaður hjúkrunarfræðingur. Fjöldi vitna sagði frá skaðlegum áhrifum lyfjabyrlunarinnar í réttarsal í síðustu viku. Sum barnanna glímdu við svefntruflanir á meðan önnur hlutu alvarlegri skaða vegna meðferðar Neatherlins. Eitt barnanna var flutt á sjúkrahús árið 2014 vegna blæðinga og bólgu á höfði sem það hlaut meðan það var í daggæslu hjá Neatherlin. Þá bentu foreldrar einnig á að þeir hefðu tekið eftir útbrotum á bleyjusvæði barna sinna, klórförum og ummerkjum um næringarskort. Neatherlin játaði brot sín fyrir dómi.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira