Erlent

Telur að Talibanar muni ekki ógna stöugleika

Hamid Karzai forseti Afganistans
Hamid Karzai forseti Afganistans MYND/AP

Hamid Karzai, forseti Afganistan, telur að Talibanar muni ekki ógna stöðugleika í landinu til lengri tíma litið. Þetta kom fram í viðtali sem Karzai átti við fréttastofu BBC.

Karzai vildi ekki gera mikið úr hótunum Talibana um að beina árásum sínum frekar að höfuðborginni Kabúl. Forsetinn sagði þó að alþjóðlegur her í landinu ætti að reyna að koma í veg fyrir frekari dráp á óbreyttum borgurum.

Samkvæmt hjálparstofnunum hafa erlendir hermenn, sem og afganskir, myrt að minnsta kosti 230 óbreytta borgarar í Afganistan það sem af er árinu.

Zabiyullah Mujahed, talsmaður Talibana, skýrði fréttastofu BBC frá því í nótt að Talibanar hygðust breyta um aðferðir og ætla að einbeita sér frekar að Kabúl á næstunni. Mujahed tók fram að NATO hefði náð að bana nokkrum leiðtogum þeirra en nú væru þeir að herða öryggisaðgerðir og fleiri en nokkru sinni fyrr byðu sig fram í sjálfsmorðsárásir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×