Erlent

Vilja að hjónabönd samkynhneigðra verði leyfð

Frá ríkisþingi New Jersey.
Frá ríkisþingi New Jersey.

Nefnd á vegum New Jersey ríkis leggur til að samkynhneigðum pörum verði frjálst að giftast líkt og er leyfilegt í tveimur öðrum fylkjum í Bandaríkjunum.

Í umsögn nefndarinnar kemur fram að samkynhneigðir njóti ekki réttinda til jafnræðis við gagnkynhneigða og að gifting sé eina leiðin til að þeir njóti þeirra réttinda sem kveðið er á um í stjórnarskrá New Jersey ríkis.

Massachusetts og Connecticut eru einu fylkin í Bandaríkjunum sem leyfa hjónabönd homma og lesbía. New Hampshire, Oregon og Vermont leyfa staðfesta samvist sem gefur samkynhneigðum stærstan hluta þeirra réttinda sem hjón hafa.

,,Þetta er ekki spurning um hvort heldur hvenær hjónabönd samkynhneigðra verða leyfð samkvæmt lögum í New Jersey," sagði Joseph Roberts, leiðtogi ríkisþings New Jersey, kátur með niðurstöðu nefndarinnar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×