Lebedev dæmdur í Moskvu Guðsteinn Bjarnason skrifar 2. júlí 2013 14:05 Alexander Lebedev. Mynd/AP
Rússneski auðkýfingurinn Alexander Lebedev hefur verið dæmdur til 150 klukkustunda samfélagsþjónustu fyrir að kýlt annan auðkýfing, Sergei Polonskí, í spjallþætti í sjónvarpi haustið 2011. Lebedev er útgefandi dagblaðsins Novaja Gazeta, sem hefur verið óhrætt við að gagnrýna rússnesk stjórnvöld. Saksóknari hafði fellt niður aðra ákæru á hendur Levedevs fyrir óspektir, sem hefði getað kostað hann fangelsisdóm. Lebedev hefur sagt að pólitískar hvatir hafi legið að baki málsókninni á hendur honum. Hann hefur þó ekki fullyrt að Vladimír Pútín forseti eigi beina aðild að því. Margir blaðamenn í Rússlandi, sem hafa gagnrýnt stjórnarhætti í Rússlandi og spillingu í æðstu röðum, hafa orðið fyrir margs konar óþægindum. Fjórir hafa hreinlega verið myrtir, þar á meðal blaðakonan Anna Politkovskaja sem skrifaði einmitt fyrir dagblaðið Novaja Gazeta. Lebedev er sjálfur fyrrverandi KGB-maður eins og Pútín forseti. Hann auðgaðist á bankastarfsemi, hefur tekið virkan þátt í stjórnmálum og hefur auk dagblaðsins Novaja Gazeta einnig tekið þátt í fjármögnun bresku dagblaðanna The Independent og The Evening Standard. Af Polonskí, sem kýldur var í sjónvarpinu, er það að segja að hann sat þrjá mánuði í fangelsi í Kambódíu fyrr á þessu ári fyrir að hafa ráðist á áhöfn báts um áramótin.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Sjá meira